Antíkbólstrun

Þegar um er að ræða viðgerðir á gömlum húsgögnum skiptir góð undirvinna höfuðmáli varðandi endingu og gæði. Leitið því ávallt til fagmanna þegar gera á upp gömul húsgögn.

Við tökum 20 ára ábyrgð á undirstoppi þegar við gerum upp frá grunni, sækjum og sendum sé þess óskað.

Hægt er að senda okkur mynd í tölvupósti og við sendum tilboð til baka. Við veitum faglega ráðgjöf varðandi viðgerðir og meðferð á húsgögnum, hjálpum til við val á efnum o.fl.